Nú þegar öll vötn og tjarnir eru ísilagðar finnst mörgum freistandi að aka út á þær. En það fer ekki alltaf eins og planað er, eins og afi leikarans Travis Kraft komst að þegar hann var á veiðum í gegnum vök í Norður Dakota í Bandaríkjunum.
Afi Travis komst ásamt fjölskyldu sinni naumlega út úr bílnum þegar ísinn brotnaði undan honum þar sem hann var á akstri á annars þykkum og traustum ísnum. Í ljós kom að heit uppspretta var undir ísnum og hafði veikt hann til muna. Bíllinn sökk en lög kveða á um að fjarlægja verði bílinn strax. Þetta er myndbandið sem travis tók í björgunarleiðangrinum.
Króm-Hjörturinn
