Það fór ekki framhjá neinum bílaáhugamönnum að verið væri að taka upp auglýsingu hér í sumar af mjög leyndardómsfullum bíl. Ég sá bílinn myndaðan fyrir utan 1919 í Hafnarstrætinu og setti fram þá kenningu að hér væri um að ræða H1 concept bílinn sem orðrómur væri um að ætti að kynna í fyrsta sinn á bílasýningunni í París.
Bílasýningin opnaði núna um helgina og þar var hann kominn, hugmyndabíllinn sem var myndaður hér í síðasta mánuði undir nafninu HR1. Auglýsingin sem var tekin hér er jafnframt tilbúin og er hún birt hér í fyrsta sinn:
Hér er stutt myndband af bílnum sem tekið var á föstudaginn á bílasýningunni í París.
Bíllinn er sagður vera samruni litla borgabílsins, fjölnota jeppans og coupé bíls. Markhópurinn er hinn tæknivæddi og tískumeðvitaði borgabúi eða eins og þeir orða það sjálfir "young active city dwellers who are style gurus and technology buffs". Þar höfum við það.
Bíllinn er mjög nýstárlegur og mun státa af öllum helstu nýjungum í tengingum og aðlögunarhæfni. Bíllinn verður hybrid4 bíll með 1.2 lítra bensínvél og 36 hestafla rafmótor. Þetta er annar bíllinn sem kynntur er í hinu nýja útliti þessa 200 ára gamla fyrirtækis, en fyrsti bíllinn var SR1 sportbíllinn.
Króm-Hjörturinn
















