Þó umferðin sé víða að skána í kreppunni, þá getur hún stundum reynt á. Ég held við getum nú samt verið fegin að herinn er farinn, ef þetta er hvernig þeim er kennt að komast áfram í umferðinni. Það væri ekki gaman að hafa einn svona á eftir sér á Miklubrautinni:
Í Bretlandi er komið nýtt tæki á markaðinn sem er nauðsynlegt á hverju nágrannafjandsamlegu heimili. Þið kannist við litbolta (paintball), stríðsleikinn þar sem barist er með málningarkúlum í stað blýkúlna. Sá leikur hefur færst á nýtt plan með þessu tæki, sem er paintball-skriðdreki búinn GX390 Honduvél.
Ímyndaðu þér karlrembukikkið við að keyra niður götuna heima hjá þér og skjóta hund nágrannans sem kúkaði í garðinn þinn og börnin sem hoppa alltaf yfir hekkið og sínöldrandi nágrannana. Eða að heimsækja verslunina með dónalega afgreiðslufólkinu og breyta aðeins litunum í gluggaútstillingingunum. Alveg þangað til einhver læðist aftan að þér og skýtur þig í hnakkan með litbolta-handbyssunni sinni.
Og það sem er best - þú getur fengið skriðdrekann þinn á númer í Bretlandi. Hann er sem sagt löglegur á götunum. Spurning hvað Umferðarstofa segir.
Jeep hefur ákveðið að leita uppruna síns og reima á sig herstígvélin. Á hergagnasýningu í London nú um helgina, sem lítið fór fyrir vegna bílasýningarinnar í Frankfurt, kynnti Jeep nýjan herjeppa, Jeep J8, sem byggir á Jeep Wrangler Unlimited jeppanum sem kynntur var á bílasýningunni í New York í fyrra og er að sögn Jeep besti "off-road" bíllinn á markaðnum.
Til þess að standast álag og kröfur sem gerðar eru til hernaðartækja hefur grindin verið styrkt í J8 jeppanum ásamt öxlum, bremsum og fjöðrun. Burðarþolið er þannig aukið í 1.339 kg. og jeppinn þolir meiri átök. Jeppinn mun verða búinn 2,8 lítra turbo-dísel vél sem skilar 158 hestöflum og dráttargetu upp á 3.500 kg. Jeppinn mun koma með 5 þrepa sjálfskiptingu. Loftinntakið á J8 jeppanum er búið sérstökum síum og snorkli á húddinu sem gerir jeppanum kleyft að aka í 76,2 cm djúpu vatni og standast akstur í sandstormum í allt að 5 klukkustundir.
Jeep J8 jeppinn verður boðinn bæði sem tveggja dyra pallbíll og fjögurra dyra fjölnotabíll og með stýrið hvort sem er hægra megin eða vinstra megin. Þó J8 jeppinn sé ekki hannaður fyrir fremstu víglínu er hann fyllilega fær um að vígbúast og má breyta honum í stjórnstöð, sjúkrabíl, fjarskiptabíl eða annað sem þörf er á, hvort sem er í hernaði eða við borgaralegar skyldur. Sérstyrktir stuðarar eru bílnum með krókum til þess að auðvelda flutning með þyrlum eða öðrum flutningatækjum.
Jeep J8 jeppinn verður framleiddur í verksmiðjum í Kaíró í Egyptalandi og er væntanlegur á markað vorið 2008. Á myndbandinu hér að neðan má sjá Wrangler Unlimited jeppann í torfærum.
Ég rakst á þetta kynningarmyndband fyrir hina tékknesku Tatra trukka. Með meira en eina og hálfa öld að baki í framleiðslu flutningatækja hefur Tatra þróað verulega öfluga trukka sem henta vel fyrir erfiðar aðstæður. Hann gæti jafnvel valtað yfri Hummerinn, ef hann næði honum ;) Kíkið á myndbandið:
Króm-Hjörturinn
Fáðu Krómið í áskrift
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.