Fyrr í dag nauðlenti pólsk Boing 767 þota frá flugfélaginu LOT í Varsjá án þess að nokkurn sakaði. Flugvélin var á leiðinni frá Newark í New Jersey til Póllands með 230 farþega innanborðs. Þegar flugvélin nálgaðist Varsjá kom í ljós bilun í lendingarbúnaði þannig að hjólin komu ekki niður. Eftir að vélin hafði losað sig við eldsneyti reyndi flugstjórinn magalendingu að hætti "Scully" sem tókst fullkomlega. Lendinguna má sjá í myndbandinu hér að neðan:
DeLorean, bíllinn sem breytt var í tímavél í Aftur til framtíðar myndunum er væntanlegur aftur á markað! Þetta var tilkynnt nú á dögunum á sýningu í Houston í Texas. Á síðasta ári keypti fyrirtækið Humble réttinn á bílnum sem hefur ekki verið framleiddur í yfir 20 ár og nú er ljóst hvað þeir hafa ákveðið að gera.
Humble hefur tilkynnt að DeLorean CMV12 bíllinn komi á markað á næsta ári sem 2013 árgerð af DeLorean CMVEV-12. EV stendur fyrir Electrical Vehicle. Hann er sem sagt rafknúinn og það er enginn draslrafmótor heldur á hann að geta komið bílnum í 100 km/klst á 4.9 sekúndum!
Lítið er vitað um bílinn en þó hefur frést að örfáir aðilar hafi fengið að reynsluaka honum með rafmótor fyrir örfáum dögum. Þetta myndband er tekið á keppnisbraut í Texas og sá sem er undir stýri í bílnum er Cameron Wynne, sonur Stephen Wynne sem á DeLorean fyrirtækið.
Svo er bara vona að það bíði einn í silfurpappír undir jólatrénu ;)
Trukkurinn sem Arctic Trucks smíðaði fyrir ferð James May og Jeremy Clarkson til Norðurpólsins er nú búinn að vinna nýja sigra. Nýjasti áfangastaður þessa merkilega bíls, sem hafði meðal annars viðkomu á glóandi hrauni á Fimmvörðuhálsi er á frímerki!
Það er ekki íslenskt frímerki sem bíllinn prýðir heldur er hann í seríu frímerkja á eynni Mön ásamt fleiri óvenjulegum farartækjum sem gert hefur verið skil í Top Gear þáttunum. Í lýsingunni frá póstmálayfirvöldum á Mön segir þetta um útgáfu frímerkjanna:
"Þetta safn af öfgakenndum tólum á frímerkjum er til að heiðra einhverjar hugrökkustu og nýstárlegustu samgöngulausnir sem Clarkson, Hammond og May hafa skapað í gegnum stærstu áskoranir sínar í Top Gear þáttunum. OK, kannski virkuðu flestir þessara bíla ekkert sérlega vel. Sumir brunnu og aðrir sukku, stundum samtímis. En þau eru öll lýsandi fyrir akkúrat það sem gerir Bretland að fremstu þjóð Jarðar: nýsköpun, vinnugleði og heilbrigt virðingarleysi fyrir stærðfræði og nákvæmum mælingum. Smellið þeim á skattframtalið ykkar með stolti!"
Þess má geta að eyjan Mön er ein hinna bresku skattaparadísa og greinilegt að þeir taka sig ekkert allt of hátíðlega :)
Hefur þig alltaf dreymt um að eiga þitt eigið flugmóðurskip? Nú er tækifærið því að á edisposals.com, vefsíðu sem selur ýmislegt gamalt og notað, hefur breski herinn nú auglýst notað flugmóðurskip til sölu.
Skipið sem um ræðir er HMS Ark Royal (Konunglega Örkin), 22.000 tonna flugmóðurskip sem hleypt var af stokkunum árið 1981 og hefur verið flaggskip breska flotans. Það hefur 1.000 manna áhöfn og hefur siglt 621.551 sjómílu. Skipið gengdi veigamiklu hlutverki í Bosníustríðinu og innrásinni í Írak. Þetta er fimmta skip breska flotans sem ber nafnið Ark Royal en það fyrsta var flaggskip breska flotans sem undir stjórn Sir Walter Raleigh sigraði flotann ósigrandi árið 1588. Frægt flugmóðurskip í seinni heimstyrjöldinni bar þetta sama nafn en því var sökkt skammt frá Gíbraltar 13. nóvember 1941. Alls hafa fjögur flugmóðurskip borið nafnið.
Hægt er að sækja um að fá að skoða gripinn sem liggur í Portsmouth fram til 27. apríl og tilboðum þarf að skila inn fyrir 13. júní næstkomandi. En það fær samt ekki hver sem er að kaupa skipið. "Við þurfum að fullvissa okkur um hæfi einstaklingsins eða samtakanna... þar með talið hvernig þeir hyggjast hýsa, viðhalda og losa sig við skipið áður en salan getur verið samþykkt," segir Tim Foreman talsmaður DE&S (Defense Equipment and Support).
Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig megi nýta skipið, eins og t.d. sem þyrluflugvöll á Thames, fljótandi hótel og fleira.
Króm-Hjörturinn
ps. fylgist með nýjum greinum á Facebook með því að smella á "like".
Ljósmyndari pressunnar náði í gær myndum af hugmyndabíl sem verið var að mynda við Smáralindina. Mikil leynd hvíldi yfir myndatökunum og var bíllinn hulinn til að ekki væri hægt að sjá útlit hans. Hér var á ferðinni hugmyndabíll frá Peugeot og eftir að hafa legið yfir myndunum hef ég komist að þeirri niðurstöðu að hér sé á ferðinni Peugeot H1 hugmyndabíllinn en orðrómur hefur verið um að frumsýna eigi hann á bílasýningunni í París í næsta mánuði. Enn hafa engar myndir verið birtar af bílnum og munu þetta vera fyrstu myndirnar sem nást af bílnum.
Peugeot H1 hugmyndabíllinn kemur í framhaldinu af hinum vel heppnaða Peugeot SR1 hugmyndabíl sem frumsýndur var í Genf í mars. Sá bíll markar upphaf nýrrar hönnunarstefnu hjá Peugeot og var um leið kynnt ný útgáfa af ljóninu, einkennismerki Peugeot, og nýtt slagorð Peugeot sem er Motion and Emotion.
Peugeot H1 bíllinn er hærri og styttri en SR1 bíllinn og er talinn vera systurbíll Citroen DS4 hugmyndabílsins sem kynntur var í Genf fyrr á árinu. Bæði Peugeot H1 og Citroen DS4 tilheyra "high rider" flokki sem eru rúmgóðir en fyrirferðalitlir fjölnotabílar, nokkurs konar "cross-over" á milli jeppa og smábíla.
Ísland hefur verið vinsælt land til að taka myndir af nýjum evrópskum bílum á undanförnum árum og það verður spennandi að sjá myndirnar af Peugeot H1 bílnum þegar þær verða birtar. Hér að neðan má sjá myndband með auglýsingunni "Winds of Change" sem tekin var hér á landi fyrir Peugeot 308 bílinn.
Ökumaður flutningabíls varð einskis var þegar hann ók inn í hliðina á Renault Clio smábíl á breskri hraðbraut á dögunum. Hann hélt ótrauður áfram á 60 mílna hraða, um 100 km hraða á klukkustund með bílinn fastan á framstuðaranum. Aðrir vegfarendur sáu bílinn og reyndu að gera ökumanninum viðvart án árangurs. Einn vegfarandi náði þessu myndbandi af bílnum:
Ekki er vitað hvernig smábíllinn festist framan á flutningabílnum né hversu lengi var ekið með hann svona. Ökumaður Renault bifreiðarinnar slapp án teljandi meiðsla frá árekstrinum.
Fritz Henderson framkvæmdastjóra GM var sagt upp störfum núna í vikunni. GM eða "Government Motors" eins og það er kallað núna, hefur átt mjög erfitt fjárhagslega og var bjargað frá gjaldþroti með innkomu ríkisins fyrir skemmstu. Uppsögnin tók strax gildi og tók Ed Whitacre við sem framkvæmdastjóri af Fritz Henderson.
Dóttir Fritz var að vonum ekki ánægð með fréttirnar og lét GM heyra það í skilaboðum sem hún skrifaði á vegg GM á Facebook. Við gefum Söru Henderson orðið:
"HE FUCKING GOT ASKED TO STEP DOWN ALL OF YOU FUCKING IDIOTS. IM
FRITZ'S FUCKING DAUGHTER, AND HE DID NOT FUCKING RESIGN. WHITACRE IS A
SELFISH PIECE OF SHIFT, WHO CARES ABOUT HIMSELF AND NOT THE FUCKING
COMPANY. HAVE FUN WITH GM, I HOPE TO NEVER BUY FROM THIS GOD FORESAKEN
COMPANY EVERY AGAIN. FUCK ALL OF YOU."
Já, nokkuð skýrt, en spurning hverjum þetta hafi hjálpað.
Stolt bílaflota ítölsku lögreglunnar hefur verið tugmilljóna króna sportbíll af gerðinni Lamborghini Gallardo - hraðskreiðasti lögreglubíll veraldar og dýrasti bíll ítölsku lögreglunnar.
Bíllinn hafði verið til sýnis á starfskynningu fyrir námsmenn í bænum Cremona á Ítalíu. Samkvæmt vitnum reyndi ökumaður lögreglubílsins að sveigja frá bíl sem ók út frá bensínstöð og í veg fyrir Lamborghini-inn. Það tókst ekki betur til en svo að þeir lentu á tveimur kyrrstæðum bílum, Bens jeppa sem endaði ofan á Lamborghini-inum og gömlum Seat. Bíllinn er talinn ónýtur eftir áreksturinn. Lögreglumennirnir sluppu með lítilsháttar meiðsli, brotið rifbein og mar. Lamborghini-inn var gjöf til lögreglunnar frá framleiðendum Lamborghini árið 2004 og er knúinn 500 hestafla vél sem kemur honum í hundraðið á fjórum sekúndum.
Munið þið eftir
bræðrunum tveimur sem fóru hringinn í kringum hnöttinn á tveimur Yamaha XT660R
hjólum fyrir tveimur árum? Það hljómar óneitanlega spennandi og núna
næstkomandi laugardag ætla kapparnir Einar og Sverrir Þorsteinssynir að segja
ferðasöguna upp í Arctic Trucks sem verður með mikla Yamaha sýningu um helgina.
Tilefni þess að þeir bræður ætla að rifja upp ferðasöguna er að Yamaha Ténéré ferðahjólin
eru nú komin aftur á markað.
Ténéré hjólið var
alltaf draumahjólið mitt og ég hef alltaf undrað mig á því að þessi hjól hafi
aldrei náð útbreiðslu hér á landi, með alla þá hálendisslóða, línuvegi og
"gömlu vegi" sem hægt er að þræða á svona hjóli. Ténéré hjólið
sameinar kosti ferðahjóls og krossara þannig að þú þarft ekki að vera að fara
með pallbíl eða kerru upp á hálendið með krossara eða fjórhjól á
"bakinu" heldur getur lagt upp í skemmtilega ævintýraferð um furður Íslands
og farið á sama farartækinu alla leið. Hjólið er upprunalega hannað fyrir
eyðimerkurakstur og við erum nú einu sinni með stærstu eyðimörk Evrópu í
bakgarðinum.
Goðsögn á tveimur hjólum
Þroskasaga Yamaha
Ténéré hjólanna kemur úr Paris-Dakar rallinu en sigurganga Yamaha hjólanna í
þessu erfiðasta ralli heims er löngu fræg, allt frá því Cyril Neveu vann fyrsta
Paris-Dakar rallið 1979 á Yamaha 500 XT. Ténéré hjólin eru off-road ferðahjól
og sameina eiginleika góðra ferðahjóla og lipra torfæruhjóla. Nafnið sækir
Yamaha í Ténéré eyðimörkina í Níger sem hefur verið einn erfiðasti kaflinn í
Paris-Dakar rallinu en í keppninni 1983 villtust 40 lið í sandstormi í
eyðimörkinni og tók það sum þeirra allt að fjóra daga að komast inn á rétta
slóð aftur. Yamaha Ténéré hjólin nutu gríðarlegra vinsælda sem alhliða
ferðahjól á níunda og tíunda áratugnum og eru nú komin á markað aftur í nýrri
og endurhannaðri útgáfu.
Nýju Ténéré hjólin
Hin nýju XT660Z
Ténéré hjól eru ný kynslóð hjóla fyrir þá sem eru að leita sér að alhliða
hjólum sem "geta farið hvert sem er og gert hvað sem er" eins og
Yamaha segir sjálft. Í anda fyrri Ténéré hjólanna eru þau hönnuð fyrir
ævintýrafólk, hvort sem það vill geta farið sveitavegina í heimahéraði, yfir
Sprengisand eða hringinn í kringum heiminn þar sem hjólið þarf að standa sig
jafnvel á malbikuðum hraðbrautum og vegleysum í óbyggðum.
Hjólið er létt og
sterkt hjól með öfluga 660 cc fjórgengis, fjögurra ventla, eins strokks SOHC
vél og fimm gíra kassa með lágum fyrsta gír fyrir vegleysurnar og háum fimmta
gír fyrir malbikaða þjóðvegi. Tankurinn er stór 23 lítra tankur sem kemur sér vel
á langferðum. Mikil fjöðrun er bæði að framan og aftan, eða 210mm að framan og
200mm að aftan.
Hjólið er smíðað til
að þola átök við erfitt landslag og eru 245mm undir lægsta punkt, hlífðarplata
undir vél og ýmis léttur hlífðarbúnaður til að vernda hjólið fyrir hnjaski. Hægt
er að bæta við auknum hlífðarbúnaði auk þess sem hægt er að fá ýmis konar
töskur og aukabúnað til að búa hjólið undir stóra ferðalagið. Hér er hægt að sjá myndband frá félögum sem fóru hringinn í kringum heiminn á þremur Ténéré hjólum og lýsa því hvernig þau hafa útbúið hjólin.
"Hér er
komið draumaferðahjólið. Þú þarft ekkert að vera að vesenast með kerrur eða
pallbíla til að fara út að leika. Þetta hjól keyrirðu bara beint úr skúrnum og
upp á Sprengisand og nýtur þess alla leið." segir Haukur
Þorsteinsson hjá Blue Mountain en þeir bjóða almenningi upp á skipulagðar
hálendisferðir á ferðahjólum. Haukur er einmitt bróðir Einars og Sverris sem
fóru hringinn.
Þeir bræður munu segja ferðasöguna kl. 12:30 laugardaginn 21. nóv. upp
í Arctic Trucks, Kletthálsi. Sýningin er hins vegar opin frá kl. 12-16 og
verður hægt að skoða allt það nýjasta í mótorhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og krossurum og gæða sér á léttum
veitingum. Nánari upplýsingar um sýninguna eru hér og fleiri myndir af Ténéré hjólinu er að finna á Yamaha Facebook síðunni.
Króm-Hjörturinn
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá nýjustu uppfærslurnar ==>
Undanfarna tvo mánuði hefur Arctic Trucks verið með bíla og starfsmenn á Suðurpólnum til þess að fylgja eftir Amundsen Omega3 gönguskíðakeppninni. Voru tveir breyttir Toyota Hilux bílar fluttir á Suðurskautslandið fyrir verkefnið sem hefur verið mjög krefjandi fyrir bæði áhöfn og bíla. Öxlar hafa brotnað og þola víst ekki að hlaðið sé 1,5 tonnum umfram leyfilega þyngd á pallinn, menn svitnað (þrátt fyrir allt að -45° frost), gírkassar gefið sig auk þess sem ein DC3 flugvél brotlenti á jöklinum þegar hún var að koma með varahluti. En bílarnir hafa sannað ágæti sitt og munu verða eftir á jöklinum í þjónustu rússnesku rannsóknarstöðvarinnar Novo.
Arctic Trucks áhöfnin er um þessar mundir að spila póker til að skera úr um það hver fær að fara í sturtu, nú þegar þeir eru loksins komnir á stað þar sem það er hægt. En vatnið dugar ekki fyrir alla. Og lyktin væntanlega eftir því ;)
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.