Fornbílarallý HERO (the Historic Endurance Rallying Organisation) á Íslandi, (The HERO Classis Reliability Trial of Iceland) hófst við Ráðhúsið klukkan 9 í morgun. Í rallýinu mega eingöngu fornbílar taka þátt en það gengur meira út á ferðamennsku en hraðakstur. Í dag var fyrsti dagur rallýsins og var ekinn hringur frá Reykjavík til Þingvalla og þaðan áfram á Gullfoss og Geysi og tilbaka í átt að Reykjavík og endað í Bláa Lóninu.
Á morgun verður svo ekið frá Reykjavík og austur á Kirkjubæjarklaustur og síðan haldið áfram næstu daga eftir hringveginum. Ekinn verður allur hringurinn og endað við Perluna í Reykjavík seinni partinn á föstudag, 12. september. Hægt er að sjá dagskránna og viðkomustaði hér!
Alls eru 65 lið sem taka þátt í rallýinu frá 10 þjóðlöndum og ýmis konar fornbílum. Elsti bíllinn í flotanum er Bentley Tourer af 1928 árgerð en yngsti bíllinn er frá 1982. Ýmsa klassíska bíla má finna í flotanum, eins og Citroen bíla, Volvo kryppu og Volvo sportbíl eins og dýrlingurinn ók á, bjöllu, Jagúar, Triumph, Morris, MG, Aston Martin, Austin Mini og fleiri. Flestir eru bílarnir frá Bretlandi.
Þið getið skoðað fleiri myndir í gallerýinu.
Gallerý
Króm-Hjörturinn
Krómið er hluti af Vefjakrot.is og er einn mest lesni bílavefur landsins. Þú getur fengið greinarnar í RSS áskrift eða í tölvupósti með því að skrá netfangið þitt hérna efst til hægri.