Honda kynnti nýja sparneytna einkaþotu á NBAA ráðstefnunni í Orlando, Florida á dögunum. Þotan sem kallast HondaJet er lítil og hagkvæm einkaþota sem er væntanleg á markað árið 2010. Þotan mun verða bæði hraðskreiðasta og sparneytnasta þotan í sínum flokki. Á sýningunni komu 100 pantanir þar sem staðfestingargjaldið var greitt en þotan kemur til með að kosta 3,65 milljónir dollara eða um 230 milljónir íslenskra króna - í Bandaríkjunum. Þegar það er borið saman við hvað menn hafa verið að borga fyrir þyrlur og þotur hingað til hljómar það mjög gott verð.
Vélin er með þotuhreyfli ofan á vængnum og getur flogið á 420 hnúta hraða eða tæplega 800 km/klst og er með langdrægni upp á 1180 sjómílur eða rúma 2.100 kílómetra. Vegalengdin frá Keflavík til London er 1.900 kílómetrar og rúmir 2.100 kílómetrar til Kaupmannahafnar, þannig að í meðvindi, þá dugar þessi þota fyrir íslenskan heimamarkað. Og ef það er ekki meðvindur, þá er allaveganna hægt að skjótast upp í sumarbústað.
Ekki var gefið upp hvað hún eyðir á hundraði.
Króm-Hjörturinn
(via gizmag.com)