Vetrardekkin eru vonandi komin undir hjá þér því það er kominn vetur, meira að segja í Reykjavík. Það sem skiptir náttúrulega öllu máli er að vera rétt dekkjaður (og nagladekk flokkast ekki undir það). Fyrir flesta þá þýðir það góð vetrardekk. Fyrir þá sem aka mikið utanbæjar má réttlæta nagladekkin en fyrir hina, þá er það bara fráleitt. Þau eru dýrari, meira veghljóð, leiðinlegri aksturseiginleikar, meiri mengun og skemmdir á götum. Svo ekki sé talað um nýhellulagða bílaplanið heima hjá þér sem verður allt rispað ef einhverjum verður það á að spóla á nagladekkjunum þar. Og þær bráðna ekkert burt.
Ég mæli með því að fólk skoði vel þá kosti sem í boði eru eins og loftbóludekkin og harðkornadekkin. Þessi dekk hafa verið að reynast gríðarlega vel og skila þér miklu betri aksturseiginleikum heldur en nagladekkin gera nokkurn tímann. Og þau eru öruggari nema kannski ef þú stundar kappakstur á ís.
Ef þetta er þér allt um megn og þú hreinlega hefur ekki efni á að endurnýja dekkin, þá er alltaf einn möguleiki eftir. Og það er að saga sér bara dekk úr tré. Passaðu bara að halda berkinum á upp á gripið ;)
Taktu þátt í könnuninni inn á krom.is um vetrardekkin.
Króm-Hjörturinn
ps. það er bara verst að íslensku trén eru ekki nema 2-3 tommur í þvermál þannig að það gæti orðið svolítið lágt undir bílinn hjá þér á íslenskum heimasmíðuðum trédekkjum.