Stolt bílaflota ítölsku lögreglunnar hefur verið tugmilljóna króna sportbíll af gerðinni Lamborghini Gallardo - hraðskreiðasti lögreglubíll veraldar og dýrasti bíll ítölsku lögreglunnar.
Bíllinn hafði verið til sýnis á starfskynningu fyrir námsmenn í bænum Cremona á Ítalíu. Samkvæmt vitnum reyndi ökumaður lögreglubílsins að sveigja frá bíl sem ók út frá bensínstöð og í veg fyrir Lamborghini-inn. Það tókst ekki betur til en svo að þeir lentu á tveimur kyrrstæðum bílum, Bens jeppa sem endaði ofan á Lamborghini-inum og gömlum Seat. Bíllinn er talinn ónýtur eftir áreksturinn. Lögreglumennirnir sluppu með lítilsháttar meiðsli, brotið rifbein og mar. Lamborghini-inn var gjöf til lögreglunnar frá framleiðendum Lamborghini árið 2004 og er knúinn 500 hestafla vél sem kemur honum í hundraðið á fjórum sekúndum.
Hér eru myndir úr árekstri lögreglunnar:
Króm-Hjörturinn
(myndir frá zaza.dk)









