Óstaðfestar fregnir herma að indverski bílaframleiðandinn eigi besta boðið í bresku lúxusbílamerkin Jagúar og Land Rover. Tata er stórt merki á heimamarkaði á Indlandi þar sem þeir framleiða bæði smábíla, jepplinga, vörubíla og rútur. En minna hefur farið fyrir Tata á Bretlandsmarkaði eða annars staðar í Evrópu.
Tata hefur hins vegar náð að vekja talsverða athygli á bílasýningum á þessu ári þar sem þeir hafa kynnt nýja framúrstefnulega bíla. Annars vegar var það ódýrasti bíll heims, smábíll sem er hugsaður fyrst og fremst fyrir Indlandsmarkað. Hins vegar var það smábíll sem gengur fyrir lofti.
Það er hins vegar spurning hvaða áhrif það muni hafa á ímyndina að Jagúar og Land Rover verði í eigu Tata. Sjarminn gæti aðeins dottið niður við það að næsti Range Rover heiti fullu nafni Tata Range Rover.
Króm-Hjörturinn

