Umræðan um öryggi í umferðinni og litla bíla á móti stórum bílum, þá eru sumir sem halda því fram að það muni miklu um öryggið. Aðrir segja að öryggi smábílanna sé orðið það mikið að það breyti engu upp á öryggið. Ökumenn smábíla virðast margir eiga erfitt með að mæta hinum stóru bílum vegna óöryggis og sumir ganga jafnvel svo langt að krefjast þess að jeppar séu bannaðir í þéttbýli.
Í myndbandinu hér að neðan var gerð tilraun á því hvernig tveir smábílar, annars vegar Smart smábíllinn og hins vegar Opel Corsa stóðu sig í árekstri við steypublokkir á 70 mílna hraða (um 115 km/klst). Bílarnir stóðu sig ótrúlega vel og framleiðendunum virðist hafa tekist að ná fram hámarksöryggi farþega í bílunum. Þið getið séð myndbandið hér fyrir neðan:
Farþegarýmið lifir af áreksturinn á svo miklum hraða. Hins vegar þolir líkaminn ekki að stöðva svona hratt. Heilinn og önnur líffæri þrýstast fram og springa (án þess að ég ætli að fara að lýsa því eitthvað nánar).
En hvað þýðir þetta fyrir stóra bíla? Þó að krumpusvæðið sé lengra og dempi höggið verulega, þá gildir nokkurn veginn það sama ef þú keyrir á vegg og staðnæmist á punktinum. Líkaminn þolir ekki höggið þó að bíllinn geri það.
En eru bílar þá jafn öruggir hvort sem þeir eru litlir eða stórir? Nei. Og það er einföld eðlisfræði sem veldur því. Ef stór bíll og lítill bíll lenta framan á hvorum öðrum, þá verður annar bíllinn að víkja. Sá bíll víkur sem kemur af minna afli inn í áreksturinn og í flestum tilfellum er það léttari bíllinn. Undantekning frá því er ef stóri bíllinn er kyrrstæður og litli bíllinn á mikilli ferð. En ef annar bíllinn er 2 tonn og hinn 700 kíló, þá er eins og þeim litla sé ekið á vegg, á meðan stóri bíllinn heldur áfram í sína átt og farþegarnir þar verða fyrir mun minna höggi.
Engu að síður, þá er frábært að sjá hversu vel smábílarnir standa sig. Ég ætla samt ekki að fá mér einn slíkan.
Króm-Hjörturinn






