Mynd: John-Morgan / cc
Evrópuráðið hefur lagt fram nýstárlega tillögu þar sem lagt er til að allar samgöngur á landi sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði bannaðar árið 2050. Mörgum þykir þetta róttæk tillaga sem muni senda EU aftur til hinna myrku miðalda, á meðan aðrir hafa bent á að ef ekkert verður að gert, muni fólk hvort eð er vera sent aftur til hinna myrku miðalda vegna þeirra einföldu staðreyndar að jarðefnaeldsneyti sé ekki endurnýjanleg orkuauðlind.
Ekki er lagt til að ferðafrelsi fólks verði skert á nokkurn hátt, slíkt sé með öllu óraunhæft, en einnig er óraunhæft að halda áfram með það sem nú er notað. Því verði að bregðast við með þeim hætti að fólk geti aðlagast því. Árið 2050 hljómar kannski eins og það sé lengst inn í framtíðinni en þar sem verið er að ræða um stórfenglegar breytingar á daglegu lífsmynstri er líklegast ekki seinna vænna að grípa inn í. Fyrri tilraunir til þess að breyta lífsstíl fólks með því að láta það sjálft þurfa að hafa fyrir því hafa ekki gengið og ljóst að fólk hefur ekki sjálfsagann þegar aðrir auðveldari og þægilegri valkostir eru í boði. "Við getum losað samgöngur undan olíuþörfinni án þess að fórna skilvirkninni eða skerða ferðafrelsið. Þetta getur verið "win-win" segir Siim Kallas, samgönguráðherra EU. Þetta verður ekki ódýr aðgerð en áætlaður kostnaður er um 1,5 trilljón Evra en spurning er hvaða afleiðingar hinn valkosturinn hafi, að gera ekki neitt.
Hægt er að lesa tillöguna í heild sinni í skjalinu "Roadmap to a Single European Transport Area"
Hjörtur
(via Treehugger.com)
