Leigubílastöðin Hreyfill hefur gert samstarfssamning við Krabbameinsfélagið og mun framvegis aka undir bleiku leigubílamerki í október mánuði. Þetta er gert til þess að vekja athygli á brjóstakrabbameini en október er mánuður brjóstakrabbans. Þetta er jafnframt gert til þess að hvetja konur að fara í skoðun og aðra til þess að styrkja krabbameinsfélagið.
Leigubílamerkið á þaki leigubílanna er nú bleikt í stað hins gula lits sem prýðir það dags daglega. Auk þess hefur x-inu verið skipt út fyrir bleika slaufu í orðinu TAXI.
Leigubílstjórarnir munu jafnframt bjóða farþegum sínum að kaupa bleikar slaufur til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Króm-Hjörtur
