Fyrr í dag nauðlenti pólsk Boing 767 þota frá flugfélaginu LOT í Varsjá án þess að nokkurn sakaði. Flugvélin var á leiðinni frá Newark í New Jersey til Póllands með 230 farþega innanborðs. Þegar flugvélin nálgaðist Varsjá kom í ljós bilun í lendingarbúnaði þannig að hjólin komu ekki niður. Eftir að vélin hafði losað sig við eldsneyti reyndi flugstjórinn magalendingu að hætti "Scully" sem tókst fullkomlega. Lendinguna má sjá í myndbandinu hér að neðan:
Króminu hefur borist þetta myndband úr eftirlitsmyndavél í lögreglubíl í Reykjavík. Myndbandið sýnir bílaeltingaleik þar sem fjöldi lögreglubíla tekur þátt í eftirför á eftir bílaþjóf á Toyota Land Cruiser.
Eftirför lögreglunnar virðist vel skipulögð og bílaþjófurinn er tekinn úr umferð á mjög snyrtilegan hátt í lokin. Bravó!
DeLorean, bíllinn sem breytt var í tímavél í Aftur til framtíðar myndunum er væntanlegur aftur á markað! Þetta var tilkynnt nú á dögunum á sýningu í Houston í Texas. Á síðasta ári keypti fyrirtækið Humble réttinn á bílnum sem hefur ekki verið framleiddur í yfir 20 ár og nú er ljóst hvað þeir hafa ákveðið að gera.
Humble hefur tilkynnt að DeLorean CMV12 bíllinn komi á markað á næsta ári sem 2013 árgerð af DeLorean CMVEV-12. EV stendur fyrir Electrical Vehicle. Hann er sem sagt rafknúinn og það er enginn draslrafmótor heldur á hann að geta komið bílnum í 100 km/klst á 4.9 sekúndum!
Lítið er vitað um bílinn en þó hefur frést að örfáir aðilar hafi fengið að reynsluaka honum með rafmótor fyrir örfáum dögum. Þetta myndband er tekið á keppnisbraut í Texas og sá sem er undir stýri í bílnum er Cameron Wynne, sonur Stephen Wynne sem á DeLorean fyrirtækið.
Svo er bara vona að það bíði einn í silfurpappír undir jólatrénu ;)
Trukkurinn sem Arctic Trucks smíðaði fyrir ferð James May og Jeremy Clarkson til Norðurpólsins er nú búinn að vinna nýja sigra. Nýjasti áfangastaður þessa merkilega bíls, sem hafði meðal annars viðkomu á glóandi hrauni á Fimmvörðuhálsi er á frímerki!
Það er ekki íslenskt frímerki sem bíllinn prýðir heldur er hann í seríu frímerkja á eynni Mön ásamt fleiri óvenjulegum farartækjum sem gert hefur verið skil í Top Gear þáttunum. Í lýsingunni frá póstmálayfirvöldum á Mön segir þetta um útgáfu frímerkjanna:
"Þetta safn af öfgakenndum tólum á frímerkjum er til að heiðra einhverjar hugrökkustu og nýstárlegustu samgöngulausnir sem Clarkson, Hammond og May hafa skapað í gegnum stærstu áskoranir sínar í Top Gear þáttunum. OK, kannski virkuðu flestir þessara bíla ekkert sérlega vel. Sumir brunnu og aðrir sukku, stundum samtímis. En þau eru öll lýsandi fyrir akkúrat það sem gerir Bretland að fremstu þjóð Jarðar: nýsköpun, vinnugleði og heilbrigt virðingarleysi fyrir stærðfræði og nákvæmum mælingum. Smellið þeim á skattframtalið ykkar með stolti!"
Þess má geta að eyjan Mön er ein hinna bresku skattaparadísa og greinilegt að þeir taka sig ekkert allt of hátíðlega :)
Blackberry kerfið lá niðri í sameinuðu arabísku furstadæmunum í nokkra daga um daginn. Afleiðingarnar sem þetta hafði voru sláandi, en í Abu Dhabi fækkaði umferðarslysum um 40%, og um 20% í Dubai yfir þessa daga.
Umferðarmenningin í þessum heimshluta hefur verið eftir reglunni "eins og fjandinn sé á hælunum á þér" og gerir það að verkum að þetta er með hættulegustu götum í heimi. Mikill hraði, kraftmiklir bílar og engin virðing borin fyrir umferðarreglum. En kannski þessar sláandi tölur um hversu mikið áhrif farsímanotkun í akstri sé að hafa verði til þess að menn fari að hugsa sig aðeins um - og þá víðar en bara í Arabíu.
Vendipunktur í arabískri umferðarmenningu?
Og leggðu nú í stæði á meðan þú lest þetta á símanum þínum ... ;)
Guinness World Records hefur staðfest nýtt heimsmet Arctic Trucks, fyrir hraðamet yfir Suðurskautslandið að Suðurpólnum.
Í leiðandri sem farinn var fyrir Landfræðifélag Kazakhstan í desember síðastliðnum var tveimur Toyota Hilux AT44 Expedition bílum ekið 2.308 km leið frá Novo stöðinni að Suðurpólnum á einungis 108 klst. Meðalhraðinn var 21,4 km á klst og er það heimsmet í ferðahraða á þessu gríðarlega erfiða svæði. Fyrra metið var reyndar í höndum annars Íslendings, Gunnars Egilssonar sem ók 6 hjóla Ford Econoline á Suðurpólinn frá Patriot Hills.
Aðstæðurnar sem bílunum var ekið eru þær erfiðustu sem hægt er að finna á Jörðinni, með gríðarlegum kulda, mikilli hæð yfir sjávarmáli en leiðin lá í um 3.500 metra hæð, auk þess sem ekið var yfir ókönnuð sprungusvæði. Leiðangurinn heppnaðist mjög vel og er önnur sönnun þeirra yfirburða sem bílar Arctic Trucks búa yfir.
Hlynur Sigurðsson, ökumaður og bifvélavirki við annan bílinn á Suðurpólnum. (Photo: Business Wire)
Arctic Trucks hefur verið að geta sér góðs orðs á erlendum vettvangi fyrir bíla sína, en frægasti leiðangur þeirra hingað til er væntanlega ferð James May og Jeremy Clarkson á Norðurpólinn í breyttum bíl frá Arctic Trucks. Þeim sama bíl ók James May síðan á glóandi hrauni á Fimmvörðuhálsi þegar gaus þar apríl í fyrra.
“Það er vaxandi áhugi frá viðskiptavinum sem vilji skipta út hægari, eyðslufrekum beltisfarartækjum með hraðskreiðari, léttari og umhverfisvænni farartækjum. Við berum mikla virðingu fyrir hinu viðkvæmri náttúru suðurskautsins og farartæki okkar hafa opnað fyrir nýja möguleika fyrir rannsóknarleiðangra á Suðurskautinu." segir Emil Grímsson hjá Arctic Trucks.
Leiðangurinn var skipulagður af Kazakhstan National Geographic Society (KNGS) og The Antarctica Company (TAC). Fjórir aðrir leiðangrar eru í bígerð, þar á meðal einn fyrir KNGS í breyttum Toyota Landcruiser þar sem leiðangurinn mun fagna 20 afmæli sjálfstæðis Kazakhstan 16. desember á Suðurpólnum og um leið 100 ára afmæli komu Amundsen og Scott til Suðurpólsins. Einn hinna leiðangranna er síðan á breyttum Toyota Tacoma bíl sem er sérstaklega smíðaður til þess að bæta heimsmetið sem Guinness var að staðfesta. Í þeim leiðangri verður ekið frá Patriot Hills, um 1.100 km leið.
Bifreiðaeftirlitið á Florida hefur bannað 1.800 einkanúmer sem þykja ekki við hæfi af einni eða annarri ástæðu. Á sumum plötunum er augljóst af hverju er verið að banna þær, en aðrar eru aðeins snúnari að lesa. Hér eru 20 af númerunum sem hafa verið bönnuð:
BIG TURD 1OLDFRT WE-SWING DOGSTYLE DRGNASS RU-NEKID VIBRTOR ASSM4N HO GETTA QT BOOTY I-FARTED NUM NUTS EZ LAY PERVERT GOLF HOE BUTT RUB CAML TOW BUK NAKD HOT SHET DEAD GUY
Eru einhver íslensk númer sem þú hefur séð sem þér finnst að ættu að vera bönnuð? Eða ætti fólk að geta sett hvað sem er á bílinn sinn ef það vill?
Það fylgir ekki sögunni hvernig þetta byrjaði, en sá sem tók myndbandið hafði ætlað að fara með bíllinn sinn í þvott ekki langt frá þegar hann tók eftir fólki sem safnaðist saman við hinn enda bílastæðisins til að horfa á eitthvað. Þegar hann kom nær sá hann hvað það var sem hafði gripið athygli vegfarenda:
Sem betur fer voru ekki margir bílar á bílastæðinu, en það er ótrúlegt að sjá viðbrögðin hjá fólkinu. Eða lögreglunni þegar hún kemur á staðinn.
Hefur þig alltaf dreymt um að eiga þitt eigið flugmóðurskip? Nú er tækifærið því að á edisposals.com, vefsíðu sem selur ýmislegt gamalt og notað, hefur breski herinn nú auglýst notað flugmóðurskip til sölu.
Skipið sem um ræðir er HMS Ark Royal (Konunglega Örkin), 22.000 tonna flugmóðurskip sem hleypt var af stokkunum árið 1981 og hefur verið flaggskip breska flotans. Það hefur 1.000 manna áhöfn og hefur siglt 621.551 sjómílu. Skipið gengdi veigamiklu hlutverki í Bosníustríðinu og innrásinni í Írak. Þetta er fimmta skip breska flotans sem ber nafnið Ark Royal en það fyrsta var flaggskip breska flotans sem undir stjórn Sir Walter Raleigh sigraði flotann ósigrandi árið 1588. Frægt flugmóðurskip í seinni heimstyrjöldinni bar þetta sama nafn en því var sökkt skammt frá Gíbraltar 13. nóvember 1941. Alls hafa fjögur flugmóðurskip borið nafnið.
Hægt er að sækja um að fá að skoða gripinn sem liggur í Portsmouth fram til 27. apríl og tilboðum þarf að skila inn fyrir 13. júní næstkomandi. En það fær samt ekki hver sem er að kaupa skipið. "Við þurfum að fullvissa okkur um hæfi einstaklingsins eða samtakanna... þar með talið hvernig þeir hyggjast hýsa, viðhalda og losa sig við skipið áður en salan getur verið samþykkt," segir Tim Foreman talsmaður DE&S (Defense Equipment and Support).
Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig megi nýta skipið, eins og t.d. sem þyrluflugvöll á Thames, fljótandi hótel og fleira.
Króm-Hjörturinn
ps. fylgist með nýjum greinum á Facebook með því að smella á "like".
Evrópuráðið hefur lagt fram nýstárlega tillögu þar sem lagt er til að allar samgöngur á landi sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði bannaðar árið 2050. Mörgum þykir þetta róttæk tillaga sem muni senda EU aftur til hinna myrku miðalda, á meðan aðrir hafa bent á að ef ekkert verður að gert, muni fólk hvort eð er vera sent aftur til hinna myrku miðalda vegna þeirra einföldu staðreyndar að jarðefnaeldsneyti sé ekki endurnýjanleg orkuauðlind.
Ekki er lagt til að ferðafrelsi fólks verði skert á nokkurn hátt, slíkt sé með öllu óraunhæft, en einnig er óraunhæft að halda áfram með það sem nú er notað. Því verði að bregðast við með þeim hætti að fólk geti aðlagast því. Árið 2050 hljómar kannski eins og það sé lengst inn í framtíðinni en þar sem verið er að ræða um stórfenglegar breytingar á daglegu lífsmynstri er líklegast ekki seinna vænna að grípa inn í. Fyrri tilraunir til þess að breyta lífsstíl fólks með því að láta það sjálft þurfa að hafa fyrir því hafa ekki gengið og ljóst að fólk hefur ekki sjálfsagann þegar aðrir auðveldari og þægilegri valkostir eru í boði. "Við getum losað samgöngur undan olíuþörfinni án þess að fórna skilvirkninni eða skerða ferðafrelsið. Þetta getur verið "win-win" segir Siim Kallas, samgönguráðherra EU. Þetta verður ekki ódýr aðgerð en áætlaður kostnaður er um 1,5 trilljón Evra en spurning er hvaða afleiðingar hinn valkosturinn hafi, að gera ekki neitt.
Þú getur fengið reglulegar uppfærslur í tölvupósti af þessari síðu með því að skrá netfangið þitt hér að neðan. Þá missirðu ekki af neinu.
Áskriftin er ókeypis og þú getur afskráð þig hvenær sem er.