Sumarhúsafrumskógurinn á Íslandi vex hratt en lítið ber á frumlegri hönnun (allar ábendingar um frumlega hönnun í íslenskum sumarhúsum eru vel þegnar). Þó eru alltaf einhverjir sem eru tilbúnir að fara nýjar óhefðbundnar leiðir. Daninn Søren Korsgaard hefur hannað sumarhús sem smíðað er úr tilbúnum einingum.

Húsið samanstendur af einum ferningi sem er 5x5 metrar að flatarmáli. Hver hlið samanstendur af stórri hurð þannig að hægt er að hafa ferninginn alveg lokaðan eða alveg opinn. Hver hurð er í tveimur lögum, annars vegar gleri og hins vegar svörtum vegg, sem gerir það að verkum að veggurinn safnar miklum hita og orku á köldum dögum. Síðan er hægt að opna hvort sem er bara glerið eða bara vegginn, allt eftir vindum, sól og óskum. Í miðju rýminu er svo stigi upp á eftir hæð þar sem er að finna svefnpláss fyrir fjóra.
Hjörtur
(nánari upplýsingar er að finna á vef Søren Korsgaard)
(via Equity Green)

Recent Comments