Sveitarstjórnarmenn og frambjóðendur ganga nú um bæi með fögur loforð, en einhvern veginn finnst mér ég ekki heyra neitt nýtt, ef frá er talinn Besti flokkurinn í Reykjavík. Við virðumst vera föst í sama farinu, jafnvel þó hluta af fólkinu sé skipt út.
Víða hafa þrekvirki verið unnin í að gjörbreyta borgum og bæjum til hins betra. Ein slík borg er Curitiba í Brasilíu sem er fremst í heimi á fleiri en einu sviði.
(mynd frá Aurea Julio) Þetta gerir Curitiba að einni áhugaverðustu borg heims. Curitiba er með hæsta hlutfall endurvinnslu í heiminum – 70%.
Jaime Lerner hefur verið borgarstjóri þar þrisvar sinnum á síðustu 40 árum og segir hér frá borginni sinni. Það er eflaust margt sem Íslendingar gætu lært af honum.
Hjörtur
(via Cities for People)









Recent Comments