Portland í Oregon er mesta hjólaborg Ameríku og fylgir fast á hæla Kaupmannahafnar og Amsterdam. Þar hafa menn lagt 200 mílur af hjólastígum síðan árið 2000 til þess að auka öryggi hjólreiðafólks, en nú er hlutfall þeirra sem nota reiðhjól komið upp í 5%.
Til þess að auka öryggið enn frekar hafa yfirvöld í Portland ákveðið að mála malbikið grænt á hjólastígunum. Á umferðarþyngstu gatnamótunum hefur stöðvunarlínan fyrir bíla verið færð aftur um 3-4 metra og grænum kassa bætt við fyrir framan þar sem reiðhjólafólk getur stöðvað. Þetta er ekki hvað síst gert til þess að koma í veg fyrir að hjólreiðafólk sé keyrt niður í hægri beygju, sem er ein algengasta orsök árekstra reiðhjóla og bíla.
Gagnrýnisraddir hafa komið upp þar sem hinn græni litur er sagður skapa falskt öryggi og geti því í raun aukið slysahættu. Lítil reynsla er þó komin á það í Portland en í Danmörku hefur náðst mjög góður árangur með sérstökum akreinum fyrir reiðhjól og slysatíðni hlutfallslega lág þar, þrátt fyrir lélega notkun á hjálmum.
Sjálfur hef ég talsverða reynslu af að hjóla bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn og í mínum huga er ekki spurning að það er miklu öruggara að hjóla þar sem sérstakar akreinar eru fyrir reiðhjól. Magn hjólreiðafólks spilar þó að sjálfsögðu inn í þar sem ökumenn í Kaupmannahöfn eru vanir að umgangast reiðhjólafólk í umferðinni sem Reykvíkingar eru ekki.
Sú umræða hefur komið upp hér að setja upp sérstakar akreinar fyrir reiðhjól á ákveðnum leiðum og það væri áhugavert að heyra skoðanir fólks á því.
Hjörtur
Vefjakrot.is
(via Treehugger)


Recent Comments