Reiðhjólamenning Hollendinga hefur löngum verið fræg en nú hafa þeir hrint af stað nýrri framúrstefnulegri áætlun um að skipta malbikinu á reiðhjólastígum landsins út með sólarrafhlöðum. Þetta er upphafið af nýju tilraunaverkefni sem miðar að því að breyta vegum í orkubú með því að leggja þá sólarrafhlöðum.
Tæknin er afrakstur hönnunarverkefnis hjá nýsköpunarhúsinu TNO í Hollandi og kallast SolaRoad. Neðsta lag stíganna er lagt steypu, þar ofan á kemur um sentímeter þykkar sólarsellur úr sílikoni og efsta lagið er styrkt öryggisgler sem hjólað er á. Alls eru vegir í Hollandi 137.000 km og því miklir möguleikar í orkuframleiðslu, með því að nýta það svæði sem nú þegar er nýtt undir vegina. Hver fermeter framleiðir um 50 kWh á ári af rafmagni en meðal heimili notar um 3.500 kWh af raforku. Það myndi því þurfa um 700 fermetra af sólarrafhlöðum til þess að anna einu heimili.
Orkan er hugsuð til nota í ljósastaura, umferðarljós og að einhverju leyti fyrir heimili og fyrirtæki í nágrenninu. Fyrsti leggurinn verður tilbúinn í Noord-Holland sveitarfélaginu árið 2012 en yfirborð vegarins þarf að uppfylla allar kröfur um yfirborð vega varðandi styrk, grip og viðhald.
Hjörtur
(via Inhabitat)






Recent Comments