Í gær strandaði olíuskip í sundunum í Skutulsfirði. Betur fór en á horfðist og enginn leki kom að skipinu. Um borð í skipinu voru 3 milljónir lítra af olíu sem hefðu valdið mjög alvarlegu umhverfisslysi ef leki hefði komið að skipinu.
Þetta var ágætis áminning um þá hættu sem lífríki Arnarfjarðar og í raun Vesturlands og Vestfjarða allra stafar af daglegum siglingum risastórra olíuskipa að væntanlegri olíuhreinsistöð. En það sem kom mér kannski mest á óvart þegar ég fór að skoða þetta, var þegar mér var bent á að olíuhreinsistöðin á að rísa á svæði sem er á náttúruminjaskrá.
Búið er að velja olíuhreinsistöðinni stað í Hvestu í Arnarfirði. Myndin hér að ofan er úr aðalskipulagi Vesturbyggðar og sýnir svæði á náttúruminjaskrá. Ég hef síðan bætt inn mynd af olíuhreinsistöð þar sem hún á að rísa, og þar sést að hún er inn á því svæði sem er á náttúruminjaskrá. Siglingaleið olíuskipanna að stöðinni liggur meðfram öllum Ketildölum, sem allir eru á náttúruminjaskrá. Vissulega falleg staðsetning, en spurning hvort hún sé heppileg fyrir olíuhreinsistöð.
Hjörtur


Recent Comments