Yfir 20.000 blogg tóku þátt í Blog Action Day og skrifuðu um umhverfismál mánudaginn 15. október 2007. Lesendur að þessum bloggsíðum í gegnum RSS lesara voru um 15 milljónir lesenda. Og það er fyrir utan alla sem lesa bloggsíðurnar með því að heimsækja þær venjulega.
Þetta var bara fyrsta skiptið. Ímyndið ykkur bara hvað hægt verður að gera árið 2008!
Ekki gleyma 15. október 2008. Merkið hann inn í dagatalið (nú eða gerist áskrifendur að Grænjaxlinum og ég skal minna ykkur á daginn á næsta ári).
Það er magnað hvað hægt er að gera mikið þegar fólk tekur höndum saman :)
Hjörtur

Recent Comments