Elsta tré Norður-Evrópu er talið vera Konungseikin í Jægerspris í Danmörku en það er talið vera 1500-1800 ára gamalt.
Konungs-eikin í Jægerspris í Danmörku, talin 1.500-2.000 ára gömul.
Tréð er upprunalega talið hafa staðið á opnu votsvæði en síðar meir var svæðið ræst fram til að skógurinn gæti vaxið betur. Það olli því að skógurinn hefur vaxið yfir eikina sem nú er að drepast. Þvermál eikurinnar er um 14 metrar.
Tvær aðrar aldagamlar eikur voru í skóginu, storka-eikin og snúna-eikin (sno-egen). Storkaeikin var talin 800 ára gömul en hún brotnaði árið 1943 og síðasta greinin féll árið 1981. Snúna eikin sem talin var um 400 ára gömul felldi sitt síðasta blað árið 1991.
Eikur voru ráðandi tré í Danmörku frá því fyrir um 5.500 árum síðan og þar til fyrir um 400 árum síðan þegar loftslagið kólnaði og beykið tók yfir. Nokkrar eikur eru til hér á landi og er t.d. 5,5 metra há eik á Akureyri, en þær eiga erfitt uppdráttar hér.
Hjörtur

Recent Comments