Þrjú skref í átt að
umhverfisvænni lífsstíl
Þessi
orð eru slagorð umhverfisverndarsinna nútímans. En fyrir hvað standa þau?
Reduce (að draga úr):
- Kauptu vörur í stórum pakkningum en aldrei það stórar að þú notir ekki allt úr þeim
- Veldu vörur með minna af umbúðum.
- Kauptu vörur í endurvinnanlegum pakkningum og/eða endurunnar vörur.
- Fáðu þér endurnotanlegar innkaupatöskur og notaðu þær!
- Veldu
íslenskt. Með því dregur þú úr menguninni sem skapast við millilandaflutninga.
- Kauptu gæðavörur
sem endast lengur.
- Dragðu úr vatns- og orkunotkun. Okkur íslendingum hættir til að gleyma þessum þætti, því við eigum jú nóg af hreinu vatni og endurnýtanlegri orku. Munum að þó við eigum þetta er óþarfi að sóa því.
Reuse (að endurnota):
- Kauptu vörur
í pakkningum sem hægt er að nota aftur.
- Gefðu eða
seldu fötin, bækurnar, húsgögnin og heimilistækin.
- Láttu gera
við biluð heimilistæki eða láttu farga þeim á viðeigandi hátt.
- Notaðu
hleðslurafhlöður og skilaðu einnota rafhlöðum til Sorpu eða á bensínstöðvar.
- Endurnýttu
glerkrukkur, plastpoka, bréfpoka, álpappír og pappabox.
- Fáðu þér
nestisbox í stað þess að hafa nestið í plastpoka.
- Notaðu báðar hliðarnar á pappírnum. Mundu að börn geta teiknað á hvað sem er!
Recycle (að endurvinna):
Kostir
endurvinnslu eru svo margir að ekki nægir einn lítill pistill til að fjalla um
hana. Þó skal nefna tvo þætti sem vega þungt.
- Endurvinnsla
dregur úr mengun þar sem endurunnin efni enda ekki sem rusl í landfyllingum eða
sorp á víðavangi.
- Með því að endurvinna drögum við úr ofnýtingu náttúruauðlinda og spörum orku.
Andrea Ævars









Recent Comments