Á þinginu í Bólivíu hefur verið lagt fram frumvarp um ný lög um móður jörð þar sem náttúran er gerð jafnrétthá mannfólkinu.
Lögunum er ætlað að tryggja að náttúran "verði ekki fyrir áhrifum af risamannvirkjum og þróunarverkefnum sem hafa áhrif á jafnvægi vistkerfa og samfélög íbúanna á svæðunum." Lögin um móður Jörð eru samstarfsverkefni stjórnvalda og grasrótarsamtaka í Bólivíu og í þeim eru náttúruauðlindir skilgreindar sem "blessanir". Lögunum er ætlað að leiða til róttækra aðgerða til verndunar náttúrunnar, minnkunar á mengun og stjórnunar á iðnaði.
Í heimsspeki innfæddra er Pachamama, eða Móðir Jörð, lifandi vera. Í frumvarpinu segir: "Hún er heilög, frjósöm og uppspretta alls lífs sem fæðir og klæðir allar lífverur í legi sínu. Hún er varanlegu jafnvægi, samspili og samskiptum við veröldina. Hún er samsetning allra vistkerfa og allra lífvera og sjálfkrafa samspili þeirra."
Landið hefur fengið ákúrur frá Bandaríkjunum og Bretlandi fyrir róttækar kröfur um lækkun kotvísýrings í loftslagsumræðum Sameinuðu þjóðanna. Í lögunum eru tilgreind 11 ný lög sem tryggja réttindi náttúrunnar. Þau eru meðal annars: rétturinn til lífs og tilveru; rétturinn til áframhaldandi hringrásar lífsins og þróunar óháð mannlegum inngripum; rétturinn til hreins vatns og hreins lofts; rétturinn til jafnvægis; rétturinn til að vera ekki mengaður; og rétturinn til þess að halda frumum og genum óbreyttum.
Evo Morales, fyrsti "innfæddi" forseti Suður-Ameríku hefur verið ötull gagnrýnandi stórveldanna og tregðu þeirra til að takmarka hækkun hitastigs við 1°C. Meðal þess sem hann hefur gagnrýnt harðlega er að á meðan Bandaríkin verja 689 milljörðum dollara í varnarmál, eru þeir einungis tilbúnir að verja 10 milljörðum dollörum til varnar loftslagi Jarðar.
Lögin eru sögð þau fyrstu sinnar tegundar en áður hefur Ekvador sett ákvæði um móður Jörð í stjórnarskrána sína. Það verður fróðlegt að sjá hvort og þá hvernig ákvæði um íslenska náttúru verður í þeirri stjórnarskrá sem nú er verið að skrifa hér á landi.
Hjörtur
(via The Guardian)

Recent Comments