Núll húsið eða ZeroHouse er algjörlega sjálfbært hús sem sér sjálfu sér fyrir bæði vatni og orku. Húsið er hægt að setja upp á á ýmsu vegu til þess að nýtast eigendunum sem best og aðeins tekur einn dag að reisa húsið. Húsið er byggt á stálramma og sérstakar undirstöður hafa verið hannaðar fyrir það svo að ekki þurfi að grafa grunn.
Húsið, sem er hannað af arkitektinum Scott Specht í New York, framleiðir sitt eigið rafmagn með sólarrafhlöðum og er með rafgeyma sem geta safnað vikubirgðum af rafmagni ef sólin lætur lítið sjá sig (dugar samt kannski skammt hér á landi). Húsið safnar líka regnvatni og sem er hreinsað og dreift um húsið með hjálp af þyngdaraflinu án þess að nokkrar orkufrekar dælur komi þar nærri. Í húsinu er líka sjálfvirkur búnaður til þess vinna úr úrgangi sem fellur til frá húsinu. Húsið er lýst upp með LED ljósum sem eru innbyggð í veggi og loft og í húsinu eru skynjarar sem nema boð úr tölvu húseigandans þannig að í gegnum hana er hægt að stjórna öllu húsinu, lýsingu, hitastigi, rakastigi o.s.frv.
Hjörtur





Recent Comments