Dr. Gross, vísindamaður hjá NASA hefur reiknað út áhrif skjálftans í Chile sem varð á laugardagsmorgun. Skjálftinn var 8.8 á Richter, sá 7. sterkasti sem mælst hefur frá upphafi og meira en 700 sinnum aflmeiri en skjálftinn sem varð á Haítí.
Þó eyðileggingin hafi verið mun minni í Chile þá stafar það af staðsetningu skjálftans. Á Haítí varð skjálftinn örfá kílómetra frá höfuðborginni sem er 3 milljón manna borg og mjög ofarlega í jarðskorðuna sem yfirleitt veldur meiri eyðileggingu. Skjálftinn í Chile varð úti fyrir strönd landsins og mun dýpra í jarðskorpunni. En þó eyðileggingin hafi verið minni voru áhrif hans á jarðkúluna margfalt meira. Þau voru jafnframt meiri heldur en skjálftinn í Indlandshafi annan í jólum 2004 sem kom af stað flóðbylgju sem kostaði yfir 200.000 manns lífið. Sá skjálfti var 9.0 á Richter.
Dr. Gross segir að skjálftinn hafi hnikað möndulhalla Jarðarinnar um 8 sentímetra og aukið snúningshraða hennar þannig að dagurinn er nú um 1.26 míkrósekúndum styttri en hann var fyrir skjálftann. Flestir hefðu nú væntanlega þegið að lengja aðeins í sólarhringnum frekar en að stytta. Það er samt engin ástæða til að örvænta. 1 míkrósekúnda er einn milljónasti úr sekúndu og því mun þetta ekki hafa merkjanleg áhrif á okkar daglega líf.
Ástæðan fyrir því að þessi skjálfti hafði svona mikil áhrif er að hann varð í misgengi sem gengur upp eftir allri Suður-Ameríku og upp fyrir miðbaug á meðan jarðskjálftinn í Indónesíu varð á misgengi sem er mun afmarkaðra.
Hægt er að lesa meira um þetta á vef NASA.
Hjörtur

Comments