Heimildarmyndin FLOW var valin óhuggulegasta myndin á Sundance kvikmyndahátíðinni af Wired tímaritinu. Myndin er heimildarmynd eftir Irena Salina og fjallar um vatn. Vatn sem almannaeign og vatn sem einkaeign. Eru stórfyrirtæki að þurrka upp vatnsból frá íbúum til þess að geta selt það á flöskum? Skortur á vatni er af mörgum talið verða stærsta vandamál heimsins á 21. öldinni.
Getum við heimfært eitthvað af þessari umræðu yfir á vatnsumræðu og eignarétt á vatni á Íslandi? Eiga bændurnir vatnið í ánum sem eru að fá hundruðir milljóna fyrir afnotaréttinn af vatninu? Eiga orkuverin vatnið sem selja okkur afurð þess, orkuna? Ef þetta er okkar eign, er réttlátt að leggja aukna skatta á afnotin af afurðum þess? Hvað finnst þér?
Hjörtur

Comments