Veitingastaðurinn The County Butchers í Kingsley Village, Cornwall býður nú upp á bökur með gráum íkornum sem hluta af villibráðinni sinn. Á meðan yfirvöld reyna að útrýma hinum óboðnum með gildrum og eitri, hafa sumir tekið upp á því að veiða þau til átu. Enda engin ástæða til að láta góða steik fara til spillis, sérstaklega á þessum tímum.
Ben Carter er líffræðingur og starfar í fiskistjórnun. Hann veiðir ameríska vatnakrabba sem er óvinsæll í breskum ám og býður veitingastöðum til kaups sem "gourmet" mat. Og hefur bara gott upp úr því. Hann er reyndar sá eini sem hefur leyfi til að veiða þennan krabba.
Carter segir þetta vera alveg upplagt. Hann hafi hemil á umhverfisvandamáli, skaffar dýrindismat fyrir veitingahús, fitulítinn og sem fluttur er stuttar vegalengdir.
Villtar dýrategundir hafa nú ekki verið mikið vandamál hér, ef frá eru taldir tveir eða þrír ísbirnir síðasta sumar, og kannski einhverjar fuglategundir. Annað mál er hins vegar með plöntutegundir. Það er spurning hvort að lesendur lumi á einhverjum góðum uppskriftum þar sem notað er "aðskota-hráefni". Ef svo er, endilega deilið þeim með okkur hér í athugasemdunum að neðan.
Hjörtur

oj bara
Posted by: hún | 20. mars 2009 at 11:49
"Crayfish" eru vatnakrabbar, þrátt fyrir nafnið. Smakkast eins og bestu rækjur.
http://en.wikipedia.org/wiki/Crayfish
Posted by: Líffræðingurinn | 20. mars 2009 at 20:02
Ah, frábært. Ég breyti því. Takk fyrir ábendinguna.
Posted by: Hjörtur Smárason | 23. mars 2009 at 10:56
Kaninur þykja herramansmatur víða um Evrópu og eru ört stækkandi hluti íslenskar fánu.
Því miður er mikil hætta á að þær séu salmonellu smitaðar því oft sækja þær vatn í affall og skurði í nágrenni mannabústaða.
Posted by: Ragnar Eiríksson | 23. mars 2009 at 14:39