Í gær strandaði olíuskip í sundunum í Skutulsfirði. Betur fór en á horfðist og enginn leki kom að skipinu. Um borð í skipinu voru 3 milljónir lítra af olíu sem hefðu valdið mjög alvarlegu umhverfisslysi ef leki hefði komið að skipinu.
Þetta var ágætis áminning um þá hættu sem lífríki Arnarfjarðar og í raun Vesturlands og Vestfjarða allra stafar af daglegum siglingum risastórra olíuskipa að væntanlegri olíuhreinsistöð. En það sem kom mér kannski mest á óvart þegar ég fór að skoða þetta, var þegar mér var bent á að olíuhreinsistöðin á að rísa á svæði sem er á náttúruminjaskrá.
Búið er að velja olíuhreinsistöðinni stað í Hvestu í Arnarfirði. Myndin hér að ofan er úr aðalskipulagi Vesturbyggðar og sýnir svæði á náttúruminjaskrá. Ég hef síðan bætt inn mynd af olíuhreinsistöð þar sem hún á að rísa, og þar sést að hún er inn á því svæði sem er á náttúruminjaskrá. Siglingaleið olíuskipanna að stöðinni liggur meðfram öllum Ketildölum, sem allir eru á náttúruminjaskrá. Vissulega falleg staðsetning, en spurning hvort hún sé heppileg fyrir olíuhreinsistöð.
Hjörtur


Afhverju ekki? Meira og minna allur Hvestudalurinn er með manngerðu landslagi enda virkjun staðsett í botni dalsins. Dalurinn er úr alfaraleið og reyndar svo að fæstir hafa séð þennan dal. Fjörðurinn hentar einkar vel fyrir þessa starfsemi þar sem hann er mjö aðdjúpur og er eins og aðrir vestfirskir firðir þröskuldsfjörður. Ég spyr frekar hvar ef ekki þar?
Posted by: Óðinn | 29. maí 2009 at 01:08