Umhverfisverndarsinnar eru ekki hrifnir af varaforsetaefni John McCain sem hann tilkynnti í dag, konu að nafni Sarah Palin. Sarah er 44 ára, 5 barna móðir og fyrrverandi fegurðardrottning. Hún er fylkisstjóri Alaska og hefur átt farsælt samstarf við olíufélögin.
Umhverfissinnar eru hins vegar ekki alveg jafn hrifnir af henni og olíufélögin. Það sem fer mest fyrir brjóstið á umhverfisverndarsinnum er einkum þetta þrennt:
1. Meiri olíuboranir eru lausnin
Palin hefur lýst því yfir að frekari olíuboranir í Alaska, meðal annars á friðlýstum verndarsvæðum, séu rétta lausnin á orkuvanda Bandaríkjanna.
2. Ísbirnir þurfa enga verndun
Hún hefur farið í mál við ríkisstjórnina til þess að reyna að snúa ákvörðun þeirra um friðun ísbjarnarins.
3. Hlýnun jarðar er ekki okkar vandamál
Hún hefur lýst því yfir að þó að Alaska finni mest fyrir hlýnun jarðar, þá sé hún sannfærð um að það hafi ekkert með mannfólkið að gera. Þrátt fyrir að sé þvert á það sem allir vísindamenn segja í dag.
Það verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif Sarah Palin mun hafa í kosningabaráttunni. Það er ekki ólíklegt að hún muni geta náð í einhverja Hillary aðdáendur sem ekki þola Obama eftir kosningabaráttuna. En aðrar konur eru móðgaðar ef McCain heldur að gömul fegurðardrottning sé nóg til að fá atkvæði.
Hjörtur
Heimildir:
The Daily Green
USMagazine.com
Grænjaxlinn er hluti af tímaritavefnum Vefjakrot.is og fjallar um umhverfismál og grænan lífsstíl. Þú getur fengið Grænjaxlinn í áskrift í RSS eða tölvupósti með því að skrá netfangið þitt í reitinn hér efst til hægri.

Eins mikið og ég er þér sammála gat ég bara ekki horft upp á eina villu.
Hún er fyllkisstjóri í Alaska ekki Kanada, Kanada er land sem er að vísu uppvið Bandaríkinn en ekki partur af því!. :)
Posted by: Ólafur Konráð Albertsson | 27. október 2008 at 23:50
Ertu ekki að grínast? Hvernig gat mér yfirsést þetta? Breyti þessu med det samme.
Posted by: Hjörtur Smárason | 28. október 2008 at 08:07