Ómar Ragnarsson mun hljóta Seacology umhverfisverðlaunin 2008 fyrir baráttu sína fyrir verndun hálendis Íslands. Í tilkynningu frá samtökunum er sagt að færðar hafi verið stórar fórnir fyrir lítinn efnahagslegan ávinning og að Ómar sé hetja í umhverfismálum á Íslandi.
Seacology eru samtök sem sérhæfa sig í verndun lífríkis á eyjum en þau voru stofnuð árið 1992 í kjölfar upplýsinga um að flestar plöntu- og dýrategundir sem orðið hafa útdauðar á síðustu 400 árum voru á eyjum.
Það má geta þess að Seacology er með námsefni sem kennarar geta lagt fyrir bekki sína inn á vefnum hjá sér.
Frá þessu er greint á mbl.is í dag.
Hjörtur

Comments