Flestir endurvinna þær umbúðir sem við fáum
greitt fyrir að skila en hvað stoppar fólk í að endurvinna fleira?
Oft heyri ég fólk segja að það endurvinni ekki því það hafi svo lítið pláss og
hér koma því ráð til að yfirstíga það vandamál.
Flestir hafa skápapláss í eldhúsi, á gangi eða í þvottahúsum og geymslum sem
nýta mætti betur, en í mjög litlum rýmum er oft erfitt að sjá hvar hægt er að
hliðra til fyrir endurvinnslunni.
Á flestum heimilum ætti að vera hægt að endurvinna dagblaðapappír, sléttan pappa,
glerkrukkur og málma (sjá Sorpa.is fyrir nánari upplýsingar).
Að nota
plássið
1. Til eru margar gerðir af kössum sem hægt er að stafla á smekklegan hátt og þá tekur endurvinnslan lítið sem ekkert gólfpláss (Til dæmis til í Rekstrarvörum og IKEA). Einnig eru til sérstakar hillur sem gegna þessu sama hlutverki (t.d. þessi ).
2. Margar innréttingar ná ekki upp í loft og þá er hægt að fá sér smekklega kassa (t.d. í IKEA), setja upp á innréttinguna og setja í þá málma sem á að endurvinna. Einnig er þessi lausn góð fyrir glerkrukkur.
3. Ísskápurinn er vannýttur staður á mörgum heimilum og hægt er að geyma létta hluti eins og endurvinnslukassa undir rafhlöður uppi á honum.
4. Fyrir pappír og sléttan pappa hefur Sorpa búið til gula og græna flokkunarpoka sem hægt er að skella inn í skáp eða geyma í forstofunni. Í fjölbýlishúsum mætti jafnvel koma upp kössum undir dagblöð og auglýsingapóst í sameigninni og þá myndi það verða hluti af þrifum sameignar að fara með dagblaðakassann í grenndargám eða Sorpu.
5. Mjólkurfernur er hægt að geyma í vaskaskápnum eftir að búið er að skola þær og þurrka.
Munum svo að það er gróði af allri endurvinnslu, jafnvel þótt við fáum aurinn ekki beint í vasann.
Andrea Ævars

Comments