Á myndunum hér fyrir neðan má sjá hvaða áhrif fellibylurinn hafði á Burma. Efri myndin er tekin 15. apríl og neðri myndin er tekin 5. maí, eftir fellibylinn. Eins og þið sjáið, eru gríðarleg landssvæði farin á kaf í sjó.
Myndirnar eru frá NASA og voru teknar með Moderate Resolution Imaging Spectroradiometer (MODIS), infrarauðri myndavél á Terra gervitunglinu. Mestu flóðin eru við ósa Irrawaddy árinnar og suður og austur af höfuðborginni Rangoon (Yangon á kortinu).
Sameinuðu þjóðirnar áætla að 1,5 milljónir manna séu í nauð vegna fellibylsins og allt að 100.000 manns hafi farist.
Hjörtur
(via Scientific American)


Comments