Það er svo sem engin bylting, slíkt hefur verið gert frá því að þvotturinn var fundinn upp. Hins vegar er víða orðið bannað að hengja út þvott, ekki síst í íbúasamfélögum í Bandaríkjunum þar sem það eru búsetufélög sem setja reglurnar. Þar þykir ekki "fínt" að hengja út þvott og því hefur það verið bannað. Fólki ber að þurrka þvottinn sinn í þurrkaranum.
Talið er að allt að 6% af orkunotkun heimila í Bandaríkjunum sé vegna notkunar á þurrkara sem setur þá í þriðja sæti yfir orkufrekustu raftækin á eftir ísskápum og ljósum. Ákveðin fylki hafa því ályktað snúrur sem umhverfisvænan og þar af leiðandi æskilegan kost - í bakgörðum. En þær 60 milljónir sem búa í íbúasamfélögum í Bandaríkjunum mega í fæstum tilfellum nota snúrur.
Aukinn áhugi er á því að fá leyfi til að nota snúrur í Bandaríkjunum. Susan Taylor stendur í baráttu við íbúasamtökin sín til að fá að nota snúrur. Hún vill geta lagt sitt af mörkum til þess að bregðast við hækkun hitastigs jarðar með því að minnka orkunotkun sína. Hún álítur það rétt sinn að mega nota sólarorku til að þurrka þvottinn með því að hengja hann út á snúrur.
Hér á sólríku Frónni má enn hengja út á snúrur þó það sjáist æ sjaldnar þvottur hanga út á snúrum. Kannski við ættum að standa vörð um rétt okkar til að nota gömlu góðu snúrurnar.
Hjörtur
(via Trendhunter.com)
codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,0,0"
WIDTH="468" HEIGHT="60" id="468x60_a" ALIGN="">
TYPE="application/x-shockwave-flash" PLUGINSPAGE="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer">

Comments