Á myndinni má sjá einn af sigurvegurunum í 2007 Spark Design & Architecture Awards - reiðhjólasjálfsalann. Sjálfsalinn virkar bara eins og aðrir gos-, nammi- eða smokkasjálfsalar. Þú setur pening í og út kemur reiðhjól. Reiðhjólið getur þú síðan notað innan ákveðins svæðis og skilið síðan eftir. Á hjólinu er örflaga sem hjálpar starfsmönnum að hafa uppi á hjólinu aftur og koma í næsta sjálfsala. Sjálfsalarnir geta innihaldið allt að 100 reiðhjól og þeim er gjarnan komið fyrir á lestarstöðvum eða hjá öðrum almenningssamgöngumiðstöðvum. Fyrirtækið á bak við sjálfsalann heitir Bikedispenser og er að sjálfsögðu staðsett í reiðhjólaborginni Amsterdam.
Hjörtur
(via Trendhunter.com)

Comments