Þetta kemur kannski ekki mörgum á óvart sem hafa séð myndina "Með allt á hreinu", nú eða komið sjálfir til Kaupmannahafnar að reiðhjól séu algengari en bílar í Kaupmannahöfn. Kaupmannahafnarborg er búin að vera að berjast gegn fólksbílum í miðborginni og efla almenningssamgöngur og reiðhjólamenningu. Nú hafa þeir náð stórum áfanga en fleiri ferðast nú með reiðhjólum til vinnu en með bíl eða um þriðjungur. Aðeins stærri hluti ferðast með almenningssamgöngum og aðeins minni hluti með bíl.
En Kaupmannahafnarborg ætlar ekki að láta þar við sitja heldur ætla þeir að auka enn frekar fjárframlög til hjólreiðamála. Markmiðið er að yfir helmingur fari til vinnu á reiðhjóli árið 2015. Til þess að ná þessu markmiði ætla þeir að bæta hjólabrautir í gatnakerfinu þannig að hægt sé að auka hraðann um 10% en um leið að fækka slysum. Þetta ætla þeir meðal annars að gera með samstilltum umferðarljósum sem miða við 20 km/klst.
Virgin Vacations birti lista yfir 11 bestu hjólaborgir heims á dögunum. Kaupmannahöfn var þar hátt á blaði, en þó ekki efst. Í fyrsta sæti var Amsterdam þar sem yfir 40% fara á hjóli í vinnuna og í öðru sæti, já haltu þér fast, Portland í Oregon. Já, það var bandarísk borg sem náði að skora hærra en Kaupmannahöfn þegar kemur að reiðhjólum. Kannski er ekki öll von úti enn.
Kaupmannahöfn heldur orðsporinu uppi og þar hjálpa bloggsíður eins og CopenhagenGirlsonBikes og Cycleliciousness sem báðar hafa það að markmiði að "Kaupmannahafnarvæða" borgir heimsins með því að útbreiða reiðhjólamenninguna. Hún skilar jú bættum lífsgæðum í minni mengun, minni hávaða, minni umferð og betra heilbrigði.
Þá er hægt að spyrja sig að því hvort mögulegt væri að Kaupmannahafnarvæða Reykjavík. Mörgum þykir það fráleitt af því að borgin er hæðótt, veður válynd og Íslendingar orðnir húðlatir. Sjálfur hef ég tekið þátt í reiðhjólamenningu Kaupmannahafnarborgar um árabil og þekki hana því af eigin raun. Eitt af því sem er lykilatriðið er tenging reiðhjólamenningarinnar við almenningssamgöngurnar. Á öllum lestarstöðvum í Kaupmannahöfn og úthverfunum eru góðar reiðhjólageymslur þar sem fólk getur geymt hjólin sín. Margir eiga tvö reiðhjól, eitt til að komast að heiman og út á lestarstöð og annað til að komast af lestarstöðinni og í vinnuna.
Það er því spurning hvort hægt væri að koma slíkri hugsun inn í borgarskipulagið í miðborg Reykjavíkur. Að á Hlemmi eða væntanlegri samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni væri hægt að koma upp öflugum reiðhjólageymslum og reiðhjólatengibrautum þaðan og í allar helstu áttir. Þá væri kannski orðinn fýsilegur kostur fyrir "útborgara" að nota almenningssamgöngur til að komast inn í miðborgina og fara síðan síðasta spölin á hjólhestinum.
Myndbandið hér að neðan er skemmtilegt sýnishorn af upplifun Bandaríkjamanns af reiðhjólaborginni Amsterdam.
Hjörtur

Comments