Ef þú hefur einhvern tímann farið í húsdýragarð og klappað geitunum þá veistu að þær japla á öllu sem þær komast í, jakkalöfum, treflum, peysum og traktorssjóði þýsks bónda. Bæði börnum og fullorðnum finnst jafnframt mjög gaman að fóðra þær (að þýska bóndanum undanskildum).
Það var því vel við hæfi að þetta japanska vélmenni sem við sjáum hér á myndinni yrði sett í búning síjórtrandi geitar. Hlutverk hennar er að éta innistæðulausa veðmiða á Edogawa Kyotei bátakeppninni í Tókýó sem annars lenda á gólfinu. Þegar fólk kemst að því að þeirra bátur kom ekki fyrstur í mark fýkur miðinn í veðmiðaætuna í geitargærunni. Og það svínvirkar því það er miklu skemmtilegra að fóðra geitina en að henda miðanum á gófið. Þetta er skemmtilegt dæmi um hvernig hægt er að fá fólk til að gera það sem það á að gera en gerir ekki af því að því finnst leiðinlegt að gera það með því að setja það í skemmtilegan búning.
Hjörtur
(via Core77.com)
codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,0,0"
WIDTH="468" HEIGHT="60" id="468x60_a" ALIGN="">
TYPE="application/x-shockwave-flash" PLUGINSPAGE="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer">


Comments