Úrvalið af vörum og vöruflokkum sem bjóða upp á "grænar" umhverfisvænar eða lífrænt ræktaðar vörur eykst stöðugt. "Íslandsvinirnir" í Whole Foods í Bandaríkjunum, sem er þekkt fyrir áherslu sína á lífrænt ræktaðar afurðir, býður nú upp á lífrænt ræktuð vín under merkinu Green Path.
Þetta er vín frá Ástralíu sem er unnið úr lífrænt ræktuðum vínberjum og er með sterku ávaxtabragði. Boðið er upp á bæði Chardonnay og Shiraz vín. Víninu er pakkað í 750 ml TETRA PRISMA pappaumbúðir frá Tetra Pak sem eru mun umhverfisvænni en hefðbundnar glerflöskur, léttari og umhverfisvænni í flutningi og endurvinnanlegar. Framleiðsluferlið allt er eftir ströngustu umhverfiskröfum og er t.d. einungis notaðir 400 ml af vatni í hvern líter af víni.
Hjörtur
(The Country Vintner via Trendhunter.com)

Nú er hægt að fá lífrænt ræktað lambakjöt. Skoðið www.graenihlekkurinn.is þar er margt gott í boði fyrir ahugafólk um lífrænan mat.
Posted by: Dagbjört Agnarsdóttir | 8. október 2008 at 11:29