Útbreiðsla E85 eldsneytisins hefur gengið vel í Bandaríkjunum en þetta eldsneyti er 85% lífetanól og 15% bensín. Það þýðir að koltvísýringslosun er 80% minni en sem kemur frá venjulegum bensínbílum.
Mjög margir nýir bílar í Bandaríkjunum eru búnir svokölluðum E85 Flex fuel vélum sem ganga bæði fyrir þessu eldsneyti og venjulegu bensíni. Hér á landi hefur þetta hins vegar ekki verið í boði fyrr en í gær er forseti Íslands vígði fyrstu E85 dæluna við Olís í Álfheimum með því að dæla E85 eldsneyti á Ford C-Max bíl frá Brimborg.
Endanlegt lítraverð sem og verð á E85 bílum er enn ekki komið í ljós en stjórnvöld hafa þó sagt að E85 muni verða undanþegið gjöldum. Það ætti því að geta verið talsvert ódýrara en bensín hér á landi. Í Bandaríkjunum er verð á E85 svipað og á bensíni. Hægt er að fá flestar tegundir amerískra bíla með E85 Flex fuel vélum.
Hjörtur
(via Brimborg)

Comments