Þann níunda september næstkomandi, 9.9. '09, verður haldin ráðstefna um netsamfélög og áhrif þeirra. Markmiðið með ráðstefnunni er að stofna til málefnalegrar og uppbyggilegrar umræðu um netsamfélög eins og Facebook, Twitter og bloggið og áhrif þeirra á viðskipti, markaðssetningu, fjölmiðla, ferðaiðnaðinn, tónlistariðnaðinn o.fl. Ráðstefnan hefur hlotið nafnið 9.9.9 - Ráðstefna um nýju netsamfélögin, nýju lögmálin, nýju tækifærin.
Ráðstefnan verður haldin í Salnum í Kópavogi og enn er opið fyrir fyrirlesara. Ef þú hefur frá góðri sögu að segja eða vilt mæla með einhverjum, endilega látið okkur vita sem fyrst. Fresturinn til þess að tilnefna fyrirlesara er til miðnættis sunnudaginn 9. ágúst.
Sérstakar panelumræður verða um eftirfarandi málaflokka:
Tónlist
Stjórnmál
Fjölmiðla
Ferðaiðnaðinn
Bloggið
Ef þú vilt fá sýningarbás eða taka þátt í undirbúningi ráðstefnunnar, hafðu þá samband við undirritaðann í s. 6171819 eða sendu póst á hjortur (hjá) scope.is.
Takið daginn frá - 9.9.9
Hjörtur

Recent Comments